Velkomin Nýr veitingastaður í hjarta Hafnarfjarðar
Nýr veitingastaður, staðsettur á frábærum stað við Fjarðargötuna í miðbæ Hafnarfjarðar, hefur nú hafið starfsemi.
Tuk Tuk Thai býður upp á gómsæta tælenska rétti á hagstæðu verði. Staðurinn býður gestum í notaleg og nútímaleg húsakynni við uppábúin borð fyrir smáa sem stóra hópa.
Þú getur sest inn í veitingasalinn okkar og notið yndislegra rétta af fjölbreyttum matseðli okkar eða valið úr fjölda tilbúninna rétta úr hitaborðinu ef þú hefur nauman tíma eða vilt taka matinn með þér heim.
Tuk Tuk Thai er staðsett að Fjarðargötu 19, 220 Hafnarfirði.
Sími: 519 88 88
Take away tilboð Fyrir tvo til fjóra
Fólkið
Tuk Tuk thai opnaði 2016. Það hafði lengi verið draumur okkar að opna veitingahús þar sem við gætum boðið upp á tælenskan mat eins og hann getur orðið bestur. Við sáum að mikil þörf var fyrir slíkan stað í miðbæ Hafnarfjarðar, þar sem við höfum búið í nokkur ár.
Starfsfólkið kemur víða að og kappkostar að veita viðskiptavinum okkar úrvals þjónustu og framreiða dýrindis tælenska rétti af kostgæfni.
Verið hjartanlega velkomin á Tuk Tuk thai.